Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

17. september 2020

Síðustu forvöð að skrá sig á spennandi námskeið!

Starfsmennt býður að venju upp á spennandi námskeið. Nú eru síðustu forvöð að skrá sig á námskeið um þrautseigju í lífi og starfi, breytingum og betri tímastjórnun í styttri vinnuvíku.

 

Gerðu ráð fyrir breytingum - Vefnám
Fimmtudaginn 17. sept. kl. 09:00 - 12:00
Á þessu námskeiði læra þátttakendur...
• að skilja og þekkja ferli breytinga
• að þekkja aðferðir og leiðir til að takast á við breytingar
• að geta valið og hagnýtt þau verkfæri sem kynnt eru til að takast á við breytingar

 

Styttri vinnuvika - betri tímastjórnun - Vefnám
Mánudaginn 21. sept. kl. 09:00 - 11:00

Á þessu námskeiði læra þátttakendur...
• betra skipulag
• betri forgangsröðun verkefna
• að skapa meiri tíma fyrir mikilvægustu verkefnin

 

Þrautseigja í lífi og starfi - Vefnám
Fimmtudaginn 24. sept. kl. 09:00 - 12:00
Á þessu námskeiði læra þátttakendur...
• að skilja hvað átt er við þegar talað er um þrautseigju og hvað hugtakið felur í sér
• að þekkja aðferðir og leiðir til að efla þrautseigju
• að beita þeim verkfærum sem þeir fá í hendur á námskeiðinu til að efla þrautseigju.

 

Upplýsingar um fleiri námskeið má sjá á glænýrri og glæsilegri vefsíðu Starfsmenntar


Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)