Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

6. október 2020

BSRB húsið lokar frá hádegi í dag

Vegna hertra sóttvarnaraðgerða og fjölgun smita hefur verið ákveðið að loka BSRB-húsinu fyrir almennum heimsóknum í ótímabundinn tíma. Lokunin tekur gildi á hádegi í dag. Nú þegar höfum við skipt starfsmannahópnum upp í tvo hópa og vinna hóparnir til skiptis heiman frá sér.

Í þeim tilfellum þar sem félagsfólk þarf nauðsynlega að hitta starfsmann er hægt að hringa á undan sér og starfsmaður hleypir gestinum inn, gestir þurfa að bera grímu og hanska. Öll erindi afgreiðum við í gegnum síma og tölvupóst. Aðalnúmer Sameykis er 525 8330 og hér má finna tölvupóstföng starfsmanna

Við vonumst við til þess að þetta ástandi standi í skamman tím. En munum að því betur sem við sjálf hugum að sóttvörnum og erum varkár, því fyrr losnum við út úr þessu ástandi.


Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)