Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

30. nóvember 2020

Veiðikortið fyrir 2021 komið í sölu á orlofsvefnum

Veiðimaður við Þingvallavatn. Ljósmynd/Axel Jón

Hægt er að fara að hlakka til vorsins, þó full snemmt sé fyrir marga, því Veiðikortið fyrir næsta ár er komið inn á orlofsvefinn okkar. Veiðikortið er þar fáanlegt með góðum afslætti og við sendum það heim til félaga. Kortið veitir aðgang að 36 veiðisvæðum um land allt og börn yngri en 14 ára veiða frítt í fylgd korthafa.

Á vefsíðu Veiðikortsins segir, að kortið er ekki skráð á nafn, þannig að auðvelt er að nota það í gjafir.

Nánari upplýsingar um Veiðikortið og hvernig má nota það má finna á vefsíðunni veidikort.is - en munið að kaupa það á orlofsvefnum til að fá félagsverðið.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)