Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

8. janúar 2021

Starfaðu með Sameyki

Félagar í Sameyki sem hafa áhuga eru hvattir til að að bjóða sig fram.

Uppstillingarnefnd Sameykis hvetur félagsmenn sem hafa áhuga á ábyrgðarstörfum innan félagsins  til að bjóða sig fram eða tilnefna þá sem þeir telja að eigi erindi. Framboði má skila inn til og með 18. janúar 2021 á vef Sameykis, sjá hér.

Hlutverk nefndarinnar er að stilla upp tillögu um formann og 14 manna stjórn Sameykis, auk þess að stilla upp fulltrúum í stjórnir orlofssjóðs, starfsmenntunarsjóðs, styrktar- og sjúkrasjóðs, vinnudeilusjóðs, fræðslusjóðs, kjörstjórn, skoðunarmenn reikninga og endurskoðendur.

Uppstillingarnefnd leggur tillögur sínar fyrir fulltrúaráð 8. febrúar nk. en aðalfundur Sameykis verður 25. mars 2021.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)