Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

28. janúar 2021

Stytting vinnuvikunnar hjá vaktavinnufólki

Vinnuvika vaktavinnufólks mun að lágmarki styttast úr 40 stundum í 36.

Nú þegar innleiðingu á styttingu vinnuvikunnar í dagvinnu er lokið eða að verða lokið á vinnustöðum ríkis og sveitarfélaga er undirbúningur undir styttinguna hjá vaktavinnufólki kominn á fullan skrið og tími til kominn fyrir alla sem starfa í vaktavinnu á vinnustöðum hins opinbera að kynna sér málið.

Mikið af kynningarefni hefur þegar verið gefið út og breytir engu hvort starfsfólki hentar betur að lesa sér til eða horfa á stutt og vel framsett kynningarmyndbönd, allir geta fundið kynningarefni við sitt hæfi.

Samið var um styttingu vinnuvikunnar í kjarasamningum aðildarfélaga BSRB og annarra stéttarfélaga opinberra starfsmanna í mars 2020. Hjá vaktavinnufólki fylgja þessari byltingu í vinnutíma ákveðnar breytingar á launamyndunarkerfi sem gott er að kynna sér.

Vinnuvika vaktavinnufólks mun að lágmarki styttast úr 40 stundum í 36. Hún mun styttast enn meira hjá þeim sem eru á þyngstu vöktunum, allt niður í 32 stundir.

BSRB og aðrir samningsaðilar standa að vefnum betrivinnutimi.is þar sem settar hafa verið inn leiðbeiningar fyrir starfsfólk og stjórnendur svo allir geti kynnt sér þær breytingar sem framundan eru. Þar sem viðbúið er að meira efni bætist við væri sniðugt að skrá sig í áskrift á vefnum hér.

Fyrir þá sem vilja fá yfirlit í einum pakka má benda á stutt PDF-skjal með helstu upplýsingum. Þeir sem frekar kjósa að horfa geta horft á stutt kynningarmyndband um styttinguna hjá vaktavinnufólki hér að neðan:

 
Stytting vinnuvikunnar hjá vaktavinnufólki.


Umbótasamtal á vinnustaðnum.


Ávinninngur kerfisbreytinga.


Markmið og leiðarljós með styttingu vinnuvikunnar hjá vaktavinnufólki.

Það er auðvelt fyrir alla að kynna sér hvað fram undan er í styttingu vinnuvikunnar hjá vaktavinnufólki. Við hvetjum alla til að kynna sér málið á betrivinnutimi.is og skrá sig í áskrift til að fá allt nýjasta efnið sem bætist við á vefinn.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)