Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

16. febrúar 2021

Ítarleg skýrsla um lífeyrismál komin út

Í skýrslunni kemur fram að ávöxtun íslensku lífeyrissjóðanna var góð miðað við önnur OECD-ríki

Sameyki vill vekja athygli félagsmanna sinna á að komin er út ný og ítarleg skýrsla eftir Stefán Andra Stefánsson og Stefán Ólafsson prófessor um árangur íslenska lífeyrissjóðakerfisins og birt er á vef rannsóknarinnar, sjá hér.  Skýrslan er afrakstur rannsóknarverkefnis um velferðar- og lífeyrismál. Þar ber margt á góma eins og samanburður á stærð íslenskra lífeyrissjóða við OECD-ríkin einnig að Ísland er með þriðja stærsta lífeyrissjóðakerfið, 173% af vergri landsframleiðslu.

Í skýrslunni kemur fram að ávöxtun íslensku lífeyrissjóðanna var góð miðað við önnur OECD-ríki árið 2018 eða 1,81%. Segir í skýrslunni að árið 2019 hafi ekki verið síðra en 2018 hjá íslensku lífeyrissjóðunum, bæði í sögulegu samhengi innanlands og ef miðað er við önnur OECD-ríki. Ávöxtun ársins var ein sú besta á tímabilinu 1997 til 2019 og jafnframt sú sjötta besta meðal OECD-ríkja.

Þá er farið yfir ávöxtun íslensku lífeyrissjóðanna frá árinu 1997 til ársins 2018 og einnig í samhengi við hagvöxt og þróun á fjármálamörkuðum.

Útgefendur skýrslunnar eru Edda – rannsóknarsetur við Háskóla Íslands og Efling – stéttarfélag.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)