Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

21. maí 2021

Bjarg íbúðafélag lækkar húsaleigu

Íbúðir Bjargs íbúðafélags í Urðarbrunni í Úlfarsárdal.

Í kjölfar nýlegrar endurfjármögnunar og endurskoðun rekstrar fjölbýlishúsa Bjargs við Móaveg í Grafarvogi og Urðarbrunn í Úlfarsárdal í Reykjavík mun félagið um næstu mánaðarmót lækka leigu hjá 190 leigutökum félagsins. Mun meðalleiga hjá þessum leigutökum lækka um 14%, úr um 180.000 í 155.000.

 

Bjarg íbúðarfélag starfar án hagnaðarsjónamiða þar sem leiguverð endurspeglar raunkostnað við rekstur fasteigna félagsins. Breytingar á rekstrarkostnaði, opinberum gjöldum og fjármagnskostnaði hafa bein áhrif á leiguverð sem tekur breytingum í samræmi við þróun kostnaðar. Hvert verkefni er sjálfstæð kostnaðareining og eru því áhrif kostnaðarbreytinga mismunandi milli fasteigna félagsins.

 

Fleiri eignir Bjargs í endurfjármögnun
Fasteignir á Akranesi og í Þorlákshöfn hafa einnig farið í gegnum endurfjármögnun og endurskoðun rekstrar. Endurfjármögnun þar hefur ekki áhrif á leiguverð að þessu sinni vegna breytinga öðrum rekstrarliðum. Leiguverð er engu að síður mjög hófstillt og töluvert lægra en á höfuðborgarsvæðinu eða rúmlega 120 þúsund kr. á mánuði. Kemur það helst til vegna íbúðagerða, lægra lóðarverðs og hagstæðari skipulagsskilmála.

 

Bjarg íbúðafélag hefur unnið að fyrrgreindri endurfjármögnun með Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og hafa lyktir þess máls leitt til fyrrgreindrar lækkunar á húsaleigu. Jafnframt hafa verið viðræður við stofnunina um endurfjármögnun á öðrum eignum félagsins á svipuðum forsendum en þær hafa tafist vegna innri fjármögnunar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Er von til þess að niðurstaða náist um það fljótlega þegar staða Húsnæðissjóðs skýrist.

 

Bjarg lítur á það sem forgangsverkefni að leita allra leiða til að halda áfram endurfjármögnun eigna félagsins og nýta styrkleika þess til að tryggja að allir leigutakar hjá því njóti þess vaxtalækkunarferlis sem hefur átt sér stað sl. misseri.

Sjá vefsíðu Bjargs íbúðafélags.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)