Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

27. maí 2021

Meirihluti andvígur frekari einkarekstri í heilbrigðiskerfinu

Rúnar Vilhjálmsson prófessor kynnti niðurstöður könnunarinnar á veffundi BSRB.

Yfirgnæfandi meirihluti landsmanna er andvígur auknum einkarekstri í heilbrigðiskerfinu samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem unnin var fyrir BSRB og Rúnar Vilhjálmsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands.

 

Rekstur verði fyrst og fremst á hendi hins opinbera
Alls vilja um 81,3 prósent landsmanna að rekstur sjúkrahúsa sé fyrst og fremst á hendi hins opinbera, það er ríkis og sveitarfélaga. Örlítill minnihluti, um 1,6 prósent, vilja að sjúkrahús verði fyrst og fremst að vera rekin af einkaaðilum. Rúmlega tveir þriðju hlutar þjóðarinnar, um 67,6 prósent, vilja að starfsemi heilsugæslustöðva sé fyrst og fremst rekin af hinu opinbera. Aðeins 3,3 prósent vilja að heilsugæslustöðvarnar verði aðallega eða eingöngu starfræktar af einkaaðilum. Þá vill meirihluti landsmanna, um 58,4 prósent, að hjúkrunarheimili verði rekin af hinu opinbera, en aðeins um 3,8 prósent vilja rekstur þeirra aðallega eða eingöngu í höndum einkaaðila.

„Þessar niðurstöður sýna með afgerandi hætti að þjóðin hafnar aukinni einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu okkar,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. „Stjórnvöld hljóta að líta til þess og standa vörð um opinbera heilbrigðiskerfið og hefja vinnu við að vinda ofan af einkavæðingu undanfarinna ára og áratuga.“

 



Könnunin var gerð af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands fyrir Rúnar Vilhjálmsson prófessor. Kostnaður við gerð könnunarinnar var greiddur af BSRB. Könnunin var gerð í mars 2021. Alls svöruðu 842 meðlimir í netpanel Félagsvísindastofnunar könnuninni, um 43 prósent þeirra sem fengu könnunina. Netpanellinn byggist á tilviljunarúrtaki úr þjóðskrá og er tryggt að dreifing aldurs, kyns, búsetu, menntunar og tekna sé sem líkust því sem gerist meðal landsmanna.

Hér má finna glærur Rúnars sem hann kynnti á fundinum.

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)