Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

22. júní 2021

Varða hlýtur styrk úr Jafnréttissjóði

F.v. Margrét Einarsdóttir, Kolbeinn H. Stefánsson, Sonja Ýr Þorbergsdóttir, Kristín Heba Gísladóttir, Drífa Snædal og Adda Guðrún Gylfadóttir

Úthlutun úr Jafnréttissjóði Íslands fór fram við hátíðlega athöfn í Hörpu þann 18. júní 2021 og hlaut Varða – rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins styrk úr Jafnréttissjóði til að framkvæma rannsókn á upplifunum og reynslu ungra kvenna á aldrinum 16-24 ára af erlendum uppruna sem eru hvorki í námi né atvinnu.

Rannsóknin byggir á frásögnum ungra kvenna
Um er að ræða rannsóknarverkefni sem tengist megindlegri rannsókn Vörðu um stöðu ungmenna af erlendum uppruna sem standa utan vinnumarkaðar og náms sem hefur hlotið styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála. Fyrirliggjandi gögn benda til þess að ungar konur af erlendum uppruna séu líklegri til að stunda hvorki atvinnu né nám en aðrir félagshópar í íslensku samfélagi og því mikilvægt að skoða stöðu þeirra og upplifun nánar. Rannsóknin byggir á frásögnum um upplifanir ungra kvenna af erlendum uppruna í rýnihóp.

Megin markmiðið er að varpa ljósi á aðstæður og reynslu viðmælenda og ná fram upplýsingum um hvaða leiðir þær telja vera til staðar til að auka virkni og þátttöku á vinnumarkaði eða auknum stuðningi til náms.


Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)