Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

7. september 2021

Um 85 prósent vilja álagsgreiðslur fyrir framlínufólk

Um 85 prósent landsmanna vilja að framlínufólkið, til dæmis heilbrigðisstarfsfólk, lögregla, sjúkraflutningamenn og aðrir, fái greitt aukalega fyrir það álag sem fylgt hefur faraldrinum. Ljósmynd/Axel Jón

Mun fleiri konur en karlar vilja álagsgreiðslur fyrir framlínufólk og yfirgnæfandi meirihluti landsmanna vill að ríki og sveitarfélög greiði því starfsfólki sem hefur verið í framlínunni í baráttunni gegn heimsfaraldrinum aukagreiðslur fyrir það álag sem það hefur verið undir. Þetta sýna niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar sem könnunarfyrirtækið Prósent gerði fyrir BSRB.

Um 85 prósent landsmanna vilja að framlínufólkið, til dæmis heilbrigðisstarfsfólk, lögregla, sjúkraflutningamenn og aðrir, fái greitt aukalega fyrir það álag sem fylgt hefur faraldrinum. Um níu prósent sögðust hvorki fylgjandi né andvíg slíkum aukagreiðslum og aðeins um sex prósent voru andvíg því að greiða framlínufólkinu álagsgreiðslur.

„Starfsfólk almannaþjónustunnar hefur verið undir gríðarlegu álagi síðastliðna átján mánuði og enn sjáum við ekki fyrir endann á þessum faraldri. Við getum ekki gert þá kröfu á þennan stóra hóp fólks að þau leggi endalaust á sig fyrir okkur hin án þess að fá greiðslur í samræmi við þetta mikla álag,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.

Konur vilja frekar álagsgreiðslur
Talsverður munur er á afstöðu fólks eftir kyni. Þannig vill mun hærra hlutfall kvenna greiða framlínufólki álagsgreiðslur, alls um 92 prósent samanborið við 78 prósent karla. Þá vilja marktækt fleiri íbúar höfuðborgarsvæðisins slíkar greiðslur, um 88 prósent, en um 80 prósent íbúa á landsbyggðinni eru sömu skoðunar.

Lítill munur er á afstöðu fólks eftir tekjum, utan við það að þeir sem hafa hæstar tekjur, 800 þúsund krónur á mánuði eða meira, vilja síður greiða aukalega fyrir álag í heimsfaraldrinum.

Þegar afstaða fólks er skoðuð eftir því hvaða flokk það myndi kjósa yrði gengið til kosninga nú má sjá að mikill meirihluti allra flokka vill álagsgreiðslur til framlínufólks. Stuðningsfólk tveggja flokka skera sig nokkuð frá öðrum, þeir sem ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn og Miðflokkinn. Þannig vilja um 70 prósent kjósenda Sjálfstæðisflokksins álagsgreiðslur og 75 prósent kjósenda Miðflokksins.

Hlutfall þeirra sem vilja álagsgreiðslur fyrir framlínufólk er mun hærra meðal stuðningsfólks annarra flokka. Hæst er það meðal þeirra sem styðja Samfylkinguna, 96 prósent, Sósíalistaflokk Íslands, 95 prósent, og meðal stuðningsfólks Vinstri grænna og Pírata, 94 prósent. Ekki er marktækur munur á svörum milli stuðningsfólks þessara flokka.

Aðferðafræðin
Könnunin var netkönnun gerð meðal könnunarhóps Prósents dagana 17. til 23. ágúst 2021. Úrtakið var 2.600 einstaklingar 18 ára og eldri. Svarendur voru alls 1.341 og svarhlutfallið því 52 prósent. Niðurstöðurnar voru vigtaðar til að úrtakið endurspeglaði álit þjóðarinnar. Tekið var tillit til kyns, aldurs og búsetu. Spurt var: Hversu sammála eða ósammála ertu því að hið opinbera (ríki og sveitarfélög) eigi að greiða framlínustarfsfólki sínu (t.d. starfsfólki Almannavarna, Landspítalans og heilsugæslu) aukalega fyrir það álag sem fylgt hefur COVID-19 faraldrinum?

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)