Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

30. nóvember 2021

Skoðanakönnun Vörðu um stöðu launafólks á Íslandi

Það tekur stuttan tíma að svara könnuninni, aðeins 10 mínútur, og allir sem svara komast í pott og geta unnið 30.000 króna gjafakort.

Sameyki hvetur alla félagsmenn til að taka þátt í könnun Vörðu um stöðu launafólks á Íslandi. Afar mikilvægt er að fá sjónarmið sem flestra til að niðurstöðurnar nýtist sem best við að móta og styðja við kröfur verkalýðshreyfingarinnar. Það tekur stuttan tíma að svara könnuninni, aðeins 10 mínútur, og allir sem svara komast í pott og geta unnið 30.000 króna gjafakort.

Könnunin er á vegum Vörðu – Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, sem var stofnuð af ASÍ og BSRB árið 2020. Könnunin er mikilvægur liður í upplýsingaöflun um stöðuna á vinnumarkaði, sér í lagi varðandi fjárhagsstöðu, stöðu á húsnæðismarkaði, heilsu og áhrifa heimsfaraldursins. Niðurstöður hennar munu hjálpa okkuar við að greina stöðu launafólks á Íslandi.

Spurt er um húsnæði, fjárhagsstöðu, líðan, heilsufar, heilbrigðisþjónustu, sumarfrístöku, áhrifa heimsfaraldursins í starfi sem og á einkalíf.

Framkvæmd könnunarinnar er alfarið í höndum Vörðu, sem sér um hönnun spurninga, uppsetningu, framkvæmd og mun sjá um úrvinnslu á niðurstöðum. Könnunin er opin í tvær vikur og hægt er að svara henni í síma, spjaldtölvu eða í tölvu.

Könnunin opnaði miðvikudaginn 24. nóvember sl. og henni verður lokað þriðjudaginn 8. desember.

Hægt er að taka þátt á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku.

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)