Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

7. febrúar 2022

Félagsfundir um land allt hefjast á morgun

Rafrænir félagsfundir verða haldnir um allt land og hefjast á morgun kl. 10 fyrir félaga í Sameyki á Vesturlandi og á Vestfjörðum. Haldið verður áfram með fundina hringinn í kringum landið og endað með tveimur fundum fyrir félagsfólk Sameykis á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum 1. og 2. mars.

Við hvetjum alla félaga í Sameyki til að taka þátt í fundunum þar sem umræðuefnin verða réttindamál, kjaramál, heimavinna í heimsfaraldrinum og viðhorf félagsfólks til hennar. Formaður Sameykis fjallar um umræður um opinbera starfsmenn í samfélaginu og mikilvægi þeirra starfa sem þeir sinna, jöfnun launa á milli markaða ofl.

Í spjallborði fundanna frá Sameyki eru; Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis, Guðmundur Freyr Sveinsson deildarstjóri kjaradeildar og Jakobína Þórðardóttir deildarstjóri félagsdeildar. Upplýst umræða um Sameyki, réttindi og kjaramál og önnur málefni sem varða félagsfólk er nauðsynleg. Áætlað að hver fundur standi yfir í eina klukkustund.

Dagskrá fundanna:

Stytting vinnuvikunnar
• Hvernig er reynslan?
• Hver er staðan?

Erindi: Guðmundur Freyr Sveinsson deildarstjóri kjaradeildar.

Áhrif heimsfaraldursins
• Heimavinnan
• Stiklað yfir skýrslu Ráðhússins

Erindi: Jakobína Þórðardóttir deildarstjóri félagsdeildar.

Að gera opinbera starfsmenn að blórabögglum
• Árásir á opinbera starfsmenn
• Jöfnun launa milli markaða

Erindi: Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis.

 

Vesturland og Vestfirðir
Þriðjudaginn 8. febrúar kl: 10:00-11:00. Skráðu þig hér á fundinn!

Norðurland
Miðvikudaginn 9. febrúar kl: 10:00-11:00. Skráðu þig hér á fundinn!

Austurland
Þriðjudaginn 15. febrúar kl: 10:00-11:00. Skráðu þig hér á fundinn!

Suðurland
Miðvikudaginn 16. febrúar kl: 10:00-11:00. Skráðu þig hér á fundinn!

Höfuðborgarsvæðið og Suðurnes
Þriðjudaginn 22. febrúar kl: 10:00-11:00. Skráðu þig hér á fundinn!

Höfuðborgarsvæðið og Suðurnes
Miðvikudaginn 23. febrúar kl: 10:00-11:00. Skráðu þig hér á fundinn!

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)