Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

10. febrúar 2022

Félagsfundur á Austurlandi

Félagsfundur Sameykis verður haldinn 15. febrúar fyrir félagsfólk á Austurlandi.

Rafrænn félagsfundur með félagsfólki Sameykis á Austurlandi verður haldinn n.k. þriðjudag 15. febrúar klukkan 10. Við hvetjum allt félagsfólk í Sameyki á Austurlandi til að taka þátt í fundinum þar sem umræðuefnin verða réttindamál, kjaramál, heimavinna í heimsfaraldrinum og viðhorf félagsfólks til hennar. Formaður Sameykis fjallar um umræður um opinbera starfsmenn í samfélaginu og mikilvægi þeirra starfa sem þeir sinna, jöfnun launa á milli markaða ofl.

Í spjallborði fundanna frá Sameyki eru; Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis, Guðmundur Freyr Sveinsson deildarstjóri kjaradeildar og Jakobína Þórðardóttir deildarstjóri félagsdeildar. Upplýst umræða um Sameyki, réttindi og kjaramál og önnur málefni sem varða félagsfólk er nauðsynleg. Fundurinn stendur yfir í eina klukkustund.


Félagsfólk Sameykis á Austurlandi.

Skráið ykkur hér á fundinn. Hlekkur á fundinn verður sendur til þeirra sem skrá sig.

Dagskrá fundarins 15. febrúar kl. 10.

Stytting vinnuvikunnar
• Hvernig er reynslan?
• Hver er staðan?

Erindi: Guðmundur Freyr Sveinsson deildarstjóri kjaradeildar.

Áhrif heimsfaraldursins
• Heimavinnan
• Stiklað yfir skýrslu Ráðhússins

Erindi: Jakobína Þórðardóttir deildarstjóri félagsdeildar.

Að gera opinbera starfsmenn að blórabögglum
• Árásir á opinbera starfsmenn
• Jöfnun launa milli markaða

Erindi: Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis.


Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)