Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

28. febrúar 2022

Dregið í happdrætti Stofnun ársins

Félagsfólk Sameykis sem tók þátt í og luku við að svara könnuninni Stofnun ársins fóru sjálfkrafa í happdrættispott Sameykis og úr hópi svarenda voru alls dregnir út 12 vinningar úr innsendum svörum.

Tvö gjafabréf frá Icelandair að andvirði 60 þúsund krónur hvort voru dregin út á númerin: 1635725293 og 203247894. Fjórir vinningar á Iceland Airwaves hátíðina voru dregin út á númerin: 55234543, 165868673, 1900234313 og 706482536. Á hverjum vinningi eru tveir miðar á Iceland Airwaves. Fimm vinningar eru helgardvöl í orlofshúsum félagsins utan úthlutunartíma. Númerin sem dregin voru út eru: 328591805, 1523413998, 1012788027, 1930898884 og 1584781867. Einn vinningur var dreginn út í vikudvöl í orlofshúsi Sameykis á Spáni. Vikudvölin er utan úthlutunartímans og var hún dregin út á númerið 1836349987.

Þá voru einnig dregnir út vinningar meðal ríkisstarfsmanna sem ekki tilheyra Sameyki og eru þau vinningsnúmer eftirfarandi: 1696907106, 2066932362, 501228901, 847993745, 446528623, 491093260, 2038935188 og 1821892709. Þeir heppnu sem hafa þessi vinningsnúmer eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Jakobínu í tölvupóstfangið jakobina@sameyki.is, eða síma 525 8330.

Sameyki þakkar félagsfólki sínu fyrir þátttökuna í könnunni Stofnun ársins og óskar vinningshöfum til hamingju með vinningana og vonum að þeir komi að góðum notum.


Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)