Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

8. mars 2022

#MeToo og lægri þröskuldur á hádegisfund

Viðburðurinn fer fram á 2. hæð á Nordica en verður einnig deilt í streymi á samfélagsmiðlum

Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna bjóða ASÍ, BSRB, BHM, Kennarasamband Íslands, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Kvenréttindafélag Íslands og Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja SSF til hádegisfundar á Hilton Reykjavík Nordica þann 8. mars kl. 12–13:15. Yfirskrift fundarins er „Er vinnumarkaðurinn vaknaður? #Metoo og lægri þröskuldur”.

Fundinum mun einnig vera deilt í streymi á samfélagsmiðlum og upptaka verður aðgengileg að fundi loknum.

Dagskrá:

Fundarstýra: Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB

Er #metoo orðsporsáhætta fyrir atvinnulífið – eða eitthvað annað og meira? Helga Hlín Hákonardóttir, meðeigandi og ráðgjafi hjá Strategíu ehf.

Reynsla erlendra kvenna af vinnustaðatengdu ofbeldi (Immigrant women's experiences of employment based violence) Linda Rós Eðvarðsdóttir, doktorsnemi

Hlutverk aktívista og áhrif frásagna (the role of activists and the power of storytelling) Edda Falak, þáttastjórnandi hlaðvarpsins Eigin konur

Þeir elska okkur einar en hata okkur saman (They love us alone but they hate us together) Sóley Tómasdóttir, kynja- og fjölbreytileikafræðingur

Viðburðurinn fer fram á 2. hæð í sal H á Hilton Reykjavík Nordica þar sem boðið verður uppá að kaupa grænmetissúpu og kaffi á 3500kr. Fundurinn verður haldinn á íslensku og túlkaður á ensku.

Nánari upplýsingar á Facebook-viðburði fundarins

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)