Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

20. apríl 2022

Breytt félagsgjald tekur gildi 1. maí

Sameyki vill minna félagsfólk sitt á að hækkun á félagsgjaldi tekur gildi næstu mánaðarmót 1. maí og er eftir á greitt sem kemur til greiðslu 1. júní. Samþykkt var á aðalfundi Sameykis 31. mars sl. að hækka félagsgjaldið um 0,1 prósent til að styrkja og efla Vinnudeilusjóð vegna komandi kjarasamninga. Atvinnurekendum hefur verið tilkynnt um þessar breytingar.

Á aðalfundinum sagði Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, að sú orðræða atvinnurekenda og samtaka þeirra hafi bæði verið harkaleg og einkennst af því að hugsanlega sé verið að hlaða í átök. Í þessari stöðu taldi stjórn félagsins vera skynsamlegt að búa sig undir harðar vinnudeilur og senda þyrfti út þau skilaboð að félagsfólk sé við öllu búið þegar kjarasamningsviðræðurnar hefjast. Þá sagði hann að það hafi sýnt sig að sterkur vinnudeilusjóður hefur áhrif í vinnudeilum.

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)