Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

20. apríl 2022

Stjórnvöld hafi ekki varið afkomu og lífskjör í faraldrinum

Greinarhöfundar draga þá ályktun að verulegur félagslegur og efnahagslegur ójöfnuður í þunglyndiseinkennum launafólks hafi ríkt á Íslandi á tímum COVID-19.

Stjórnvöld hafi ekki varið afkomu og lífskjör fólks í faraldrinum með fullnægjandi hætti með þeim afleiðingum að mörg heimili upplifðu bæði fjárhagsþrengingar og andlega vanlíðan.

Fram kemur í niðurstöðum rannsóknar Vörðu - rannsóknarstofnunar vinnumarkaðsins að líkur á þunglyndi aukast eftir því sem félags- og efnahagsleg staða er verri. Í COVID-19 faraldrinum bar lágtekjufólk og fólk í viðkvæmri stöðu á íslenskum vinnumarkaði auknar byrðar af faraldrinum umfram þau sem voru betur sett. Þegar áhættan af fjárhagsþrengingum voru metnar kom í ljós sterk tengsl milli efnislegs skorts og aukinnar tíðni þunglyndiseinkenna.

„Niðurstöður rannsóknarinnar um að efnislegur skortur hafi verið öflugasti áhættuþáttur þunglyndiseinkenna meðal íslensks launafólks á tímum COVID-19 sýnir mikilvægi þess að aðgerðir í kjölfar heimsfaraldursins snúi að því að tryggja heilsu en ekki síður fjárhagslegt öryggi,“ segir Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu.

Auk þess hafa nýlegar útlendar rannsóknir sýnt að tengsl eru á milli geðheilsu, kyns, aldurs, uppruna, menntunar, tekna, fjárhagsþrenginga og atvinnuleysis. Rannsóknirnar benda einnig til þess að því meiri sem fjárhagsþrengingar fólks eru því meiri er áhrifamáttur þeirra í tengslum við þunglyndi, en faraldurinn hafi jafnframt magnað upp félagslegan og efnahagslegan ójöfnuð í geðheilsu sem fyrir var á vinnumarkaði.

Sambærileg áhrif á íslenskum vinnumarkaði
Rannsókn Vörðu á tengslum þunglyndiseinkenna og fjárhagsþrenginga benda til þess að sambærilegra áhrifa hafi gætt á íslenskum vinnumarkaði.

Greinarhöfundar draga þá ályktun að verulegur félagslegur og efnahagslegur ójöfnuður í þunglyndiseinkennum launafólks hafi ríkt á Íslandi á tímum COVID-19. Stjórnvöld hafi ekki varið afkomu og lífskjör fólks í faraldrinum með fullnægjandi hætti með þeim afleiðingum að mörg heimili upplifðu bæði fjárhagsþrengingar og andlega vanlíðan.

Greinina má lesa í heild sinni á vef Íslenska þjóðfélagsins. Höfundar greinarinnar eru dr. Margrét Einarsdóttir, félagsfræðingur, dr. Kolbeinn Hólmar Stefánsson, dósent við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands og Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu – rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins.

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)