Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

29. apríl 2022

Sameinumst öll sem eitt í kröfugöngunni á 1. maí!

Kæru félagar. Sameinumst í kröfugöngunni 1. maí. Sameyki óskar eftir þátttöku þinni í kröfugönginni á sunnudaginn kemur. Við söfnumst saman á horni Laugavegar og Snorrabrautar kl. 13:00 og kröfugangan fer af stað niður Laugaveginn með Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitinni Svan kl. 13:30.

BSRB býður félagsfólki sinna aðildarfélaga í kaffi og með því í félagamiðstöðinni á Grettisgötu 89 að loknum fundinum.

 

Reykjavík
Safnast saman á horni Laugavegar og Snorrabrautar kl. 13:00
Kröfugangan leggur af stað kl. 13:30. Lúðrasveit Verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila í göngunni og á Ingólfstorgi.

Útifundur á Ingólfstorgi Kl. 14:10, fundarstjóri Þórhildur Þorkelsdóttir.
Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis og Drífa Snædal, forseti ASÍ flytja ávarp.

Una Torfa og Bubbi Morthens skemmta með tónlist. Kórar og fundarmenn syngja Maístjörnuna og Internationallinn sunginn og leikinn.


Hafnarfjörður
Baráttutónleikar Verkalýðsfélagsins Hlífar og STH (Starfsmannafélags Hafnarfjarðar) verða haldnir í Bæjarbíói, kl. 15:00.  Fram koma þrjú af stóru nöfnunum í íslensku tónlistar og skemmtanalífi í dag, Sóli Hólm, Bríet og Bjartmar Guðlaugsson.  Frítt er inn á meðan húsrúm leyfir. Einnig verður boðið upp á léttar veitingar, gosdrykki, kaffi og sælgæti.
Húsið opnar kl. 14:30 og er fólk hvatt til að mæta tímanlega.


Akranes
Verkalýðsfélag Akraness, VR, FIT Félag iðn- og tæknigreina, Sameyki, Kennarasamband Íslands og Sjúkraliðafélag Íslands
standa fyrir dagskrá á hátíðar- og baráttudegi verkafólks 1. maí.
Safnast verður saman við Þjóðbraut 1, kl. 14:00 og gengin kröfuganga að hátíðarsal eldri borgara á Dalbraut þar sem hátíðardagskrá hefst.
Ræðumaður dagsins: Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og SGS
Kvennakórinn Ymur syngur nokkur lög
Boðið verður upp á kaffihlaðborð
Bíósýningar verða fyrir börnin í Bíóhöllinni kl. 13:00 og 16:00 (foreldrar þurfa að nálgast rafrænan frímiða á vlfa.is)


Stykkishólmur
Verkalýðsfélag Snæfellinga, Kjölur og Sameyki standa fyrir dagskrá á Hótel Stykkishólmi.
Dagskráin hefst á Hótel Stykkishólmi kl. 13:30
Kynnir: Helga Hafsteinsdóttir, Kjölur
Ræðumaður: Arna Jakobína Björnsdóttir formaður Kjalar
Tónlistaratriði úr Tónlistarskóla Stykkishólms
Katrín Halldóra Sigurðardóttir
Kaffiveitingar


Grundarfjörður
Verkalýðsfélag Snæfellinga, Kjölur og Sameyki standa fyrir dagskrá í Samkomuhúsinu.
Dagskráin hefst í Samkomuhúsinu kl. 14.30
Kynnir: Garðar Svansson, Sameyki
Ræðumaður: Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar
Tónlistaratriði úr Tónlistarskóla Grundarfjarðar
Katrín Halldóra Sigurðardóttir
Kaffiveitingar að hætti Gleym-mér-ei


Snæfellsbær
Verkalýðsfélag Snæfellinga, Kjölur og Sameyki standa fyrir dagskrá í Klifi.
Dagskráin hefst í Klifi kl. 15.30
Kynnir: Vignir Smári Maríasson, Verkalýðsfélagi Snæfellinga
Ræðumaður: Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar
Tónlistaratriði úr Tónlistarskóla Snæfellsbæjar
Katrín Halldóra Sigurðardóttir
Kaffiveitingar að hætti eldri borgara


Borgarnes
Stéttarfélag Vesturlands og Kjölur standa fyrir hátíðar- og baráttufundi sem hefst í Hjálmakletti, Borgarnesi kl. 14:00
Hátíðin sett. Signý María Völundardóttir syngur. Nemendur úr tónlistarskóla Borgarfjarðar flytja tónlist.
Ávarp. Söngfjölskyldan úr Kveldúlfsgötunni, Theódóra, Olgeir Helgi og Sigríður Ásta koma fram.
Internasjónallinn sunginn.
Félögin bjóða samkomugestum í súpu og brauð að fundi loknum. Foreldrar og nemendur 9.bekkjar GB sjá um veitingar.
Kvikmyndasýning fyrir börn verður í Óðali kl 13:30, boðið verður upp á popp og ávaxtasvala. (Athugið aðeins þessi eina sýning)


Búðardalur
Stéttarfélag Vesturlands, Kjölur og Sameyki standa saman að samkomu í Dalabúð kl.14.30
Skemmtiatriði: Elísabet Ormslev, söngkona og Tónlistarskóli Auðarskóla.
Gestum er boðið uppá kaffiveitingar.


Ísafjörður
Lagt verður af stað frá Alþýðuhúsinu kl. 14:00 með Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar í fararbroddi
Hátíðardagskrá í Edinborg
Ræðumaður dagsins: Finnbogi Sveinbjörnsson
Tónlistaratriði: Bergþór Pálsson syngur við undirleik Gylfa Ólafssonar
Dansatriði – Börn dansa ballet
Pistill dagsins: Albert Eiríksson
Dansatriði – Rósanna dansar magadans
Súpa í boði 1. maí nefndar í Edinborgarhúsinu að hátíðarhöldum loknum
Bíó fyrir börn í Ísafjarðarbíói kl. 14:00 og kl. 16:00 - Ævintýri Pílu
Bíó fyrir eldri í Ísafjarðarbíói kl. 20:00 – Allra síðasta veiðiferðin


Patreksfjörður
Bíó fyrir börn kl. 16:00 - Ævintýri Pílu


Suðureyri
Kröfuganga frá Brekkukoti kl. 14:00
Boðsund barna í Sundlaug Suðureyrar
Hátíðardagskrá í Félagsheimili Súgfirðinga
Kaffiveitingar – 1. maí ávarp - Söngur og hljóðfæraleikur


Bolungarvík
Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur býður í kaffi og meðlæti. Kl. 15:00 7. og 8. bekkur grunnskóla Bolungarvíkur sér um kaffiveitingarnar.
Hrund Karlsdóttir, formaður Verkalýðs og sjómannafélags Bolungarvíkur flytur ávarp.
Tónlistaskóli Bolungarvíkur sér um tónlist og söng
Hjörtur Traustason og Bjarki Einarsson taka nokkur lög.


Akureyri
Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið kl.13:30 en hálftíma síðar verður lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar
Hátíðardagskrá í Menningarhúsinu Hofi að lokinni kröfugöngu
Finnur Víkingsson, formaður Rafiðnaðarfélags Norðurlands og Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður RSÍ flytja ávörp.
Kaffiveitingar að lokinni dagskrá
Vilhjálmur Bragason stýrir dagskránni - Söngur og gleði með gestum úr Hárinu ásamt Ívari Helgasyni.


Fjallabyggð
Dagskrá í Fjallabyggð verður í sal félaganna, Eyrargötu 24b Siglufirði frá kl. 14:30 til 17:00
Ávarp frá 1. maí nefnd stéttarfélaganna
Kaffiveitingar


Húsavík
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum bjóða til hátíðarhalda í íþróttahöllinni kl. 14:00
Ræðumenn: Ósk Helgadóttir, varaformaður og Aðalsteinn Baldursson formaður Framsýnar
Elísabet Helgadóttir og Kristján Helgason flytja Maístjörnuna.
Stefán Jakobsson tekur lagið og fer með gamanmál.
Einar Óli syngur nokkur lög.
Jónas Þór og Arnþór verða með tónlistar og skemmtiatriði.
Tónasmiðjan býður til veislu.


Þórshöfn
Verkalýðsfélag Þórshafnar býður öllum frítt í Íþróttamiðstöðina.
Kaffi og veitingar eru einnig í boði verkalýðsfélagsins.


Vopnafjörður
Hátíðardagskrá í Félagsheimilinu Miklagarði á mill kl. 12:00-13:00
Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins.
Ræðumaður: Sigríður Dóra Sverrisdóttir


Borgarfjörður eystri
Hátíðardagskrá í Álfheimum á mill kl. 12:00-13:00
Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins.
Ræðumaður: María Von Pálsdóttir


Seyðisfjörður
Hátíðardagskrá í Félagsheimilinu Herðubreið á mill kl. 12:00-13:00
Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins.
Ræðumaður: Auður Ingibjörg Brynjarsdóttir


Egilsstaðir
Hátíðardagskrá á Hótel Héraði á mill kl. 12:00-13:00
Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins.
Ræðumaður: Bergsteinn Brynjólfsson


Reyðarfjörður
Hátíðardagskrá í Safnaðarheimilinu á mill kl. 12:00-13:00
Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins.
Ræðumaður: Sverrir Mar Albertsson


Eskifjörður
Hátíðardagskrá í Melbæ á mill kl. 12:00-13:00
Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins.
Ræðumaður: Sigurður Hólm Freysson


Neskaupstaður
Hátíðardagskrá í Hótel Hildibrand á mill kl. 12:00-13:00
Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins.
Ræðumaður: Ásdís Helga Jóhannsdóttir


Fáskrúðsfjörður
Hátíðardagskrá í Glaðheimum á mill kl. 12:00-13:00
Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins.


Stöðvarfjörður
Hátíðardagskrá í Grunnskólanum Stöðvarfirði á mill kl. 12:00-13:00
Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins.
Ræðumaður: Sverrir Kristján Einarsson


Breiðdalsvík
Hátíðardagskrá á Hamar kaffihúsi á mill kl. 12:00-13:00
Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins.
Ræðumaður: Sif Kjartansdóttir


Djúpavogur
Hátíðardagskrá á Hótel Framtíð á mill kl. 12:00-13:00
Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins.
Ræðumaður: Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir


Hornafjörður
Hátíðardagskrá á Z Bistro á mill kl. 12:00-13:00
Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins.
Ræðumaður: Sigurður Einar Sigurðsson


Selfoss
Kröfuganga frá Austurvegi 56 kl. 11:00. Félagar í Sleipni fara fyrir göngunni.
Ræðumenn: Flosi Eiríksson framkvæmdastjóri SGS og Jóhannes Torfi Torfason, Nemi í ML.
Tónafljóð verður með barnaskemmtun og Guðrún Árný flytur nokkur lög.
Veitingar í boði stéttarfélaganna á Hótel Selfossi


Vestmannaeyjar
1. maí verður verður haldinn hátíðlegur í AKÓGES
Húsið opnar kl. 14:00
Kaffi samsæti frá 14:30
Skólahljómsveit Vestur- og Miðbæjar ásamt Skólalúðrasveit Vestmannaeyja sjá um tónlistaratriðin.


Reykjanesbær
Stéttarfélögin á svæðinu bjóða félagsmönnum og öðrum í heimsókn á skrifstofur félaganna til að kynna sér starfsemina í tilefni dagsins. Opið hús verður í Krossmóa 4, 4. Hæð milli kl. 14 – 16 þar sem boðið verður upp á kaffi, léttar veitingar og spjall.


Grindavík
Verkalýðsfélag Grindavíkur verður með opið hús í Gjánni að Austurvegi 5, frá kl. 15 – 17 þar sem boðið verður upp á kaffi og meðlæti.

 

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)