12. maí 2022
Aðalfundur Lífeyrisdeildar Sameykis haldinn 17. maí

Frá haustfagnaði Lífeyrisdeildar Sameykis.
Verið velkomin á aðalfund Lífeyrisdeildar Sameykis sem haldinn verður þriðjudaginn 17. maí n.k. kl. 14:00 í félagamiðstöðinni að Grettisgötu 89, 1. hæð. Stofnfundur Lífeyrisdeildar Sameykis var haldinn 12. apríl 2019.
Dagskrá fundarins var samkvæmt starfsreglum deildarinnar.
1. Stjórn deildarinnar gefur skýrslu um starfsemina á síðastliðnu ári
2. Lagðir fram til samþykktar endurskoðaðir reikningar deildarinnar fyrir síðastliðið ár
3. Gerð grein fyrir störfum og reikningum símenntunarsjóðs
4. Tekin ákvörðun um tillögur til breytinga á starfsreglum deildarinnar
5. Kosnir tveir skoðunarmenn félagsreikninga
6. Önnur mál