Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

27. janúar 2023

Gera alvarlegar athugasemdir við inngrip ríkissáttasemjara

BHM, BSRB og KÍ gera alvarlegar athugasemdir við inngrip ríkissáttasemjara í kjaradeilu Eflingar og SA.

BSRB, BHM og KÍ gera alvarlegar athugasemdir við inngrip ríkissáttasemjara í kjaradeilu Eflingar og SA. Í sameiginlegri yfirlýsingu segja bandalög opinberra starfsmanna að ríkissáttasemjari leggi til miðlunartillögu áður en niðurstaða kosningar um verkfallsaðgerðir liggja fyrir. Segir í yfirlýsingunni að slíkt inngrip leiðir óhjákvæmilega til þess að verkfallsvopnið er slegið úr höndum stéttarfélaga sem hafa fullan rétt á að beita því og gera BSRB, BHM og KÍ þá sjálfsögðu kröfu að sjálfstæður samningsréttur stéttarfélaga sé virtur.

Þá segja þau að aðgerð ríkissáttasemjara, að gera að engu verkfallsvopn stéttarfélags, sé alvarleg aðgerð og stórt ríkisinngrip sem getur skapað hættulegt fordæmi. Hlutleysi og lagalegar forsendur þurfa að vera hafnar yfir allan vafa þegar ríkissáttasemjari ákveður að hlutast til um með beinum hætti í vinnudeilur.

Yfirlýsingin í heild sinni

BHM, BSRB og KÍ gera alvarlegar athugasemdir við inngrip ríkissáttasemjara í kjaradeilu Eflingar og SA.

Afar fátítt er að miðlunartillögum sé beitt og hefur það helst verið gert á opinberum vinnumarkaði. Þá eru lög nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur skýr hvað varðar formkröfur fyrir slíkri miðlunartillögu, þ. á m. um skyldur ríkissáttasemjara til samráðs við samningsaðila um slíka tillögu.

Í II. kafla laga nr. 80/1938 er að finna þær leiðir sem aðilum kjarasamnings eru heimilar í þeim tilgangi að vinna að framgangi krafna sinna í vinnudeilum. Í tilviki stéttarfélaga ber þar hæst verkfallsheimildin.

Það er stórt og alvarlegt inngrip í vinnudeilu af hálfu ríkissáttasemjara að leggja fram miðlunartillögu. Sérstaklega þegar horft er til þess að þátttaka í kosningu þarf að vera mjög mikil svo unnt sé að fella tillöguna. Lögum samkvæmt þarf 25% félagsfólks að synja miðlunartillögu. Þröskuldurinn er því mun hærri en þegar kosið er um kjarasamninga og verkfallsaðgerðir og getur komið upp sú staða að tillagan teldist samþykkt jafnvel þó meirihluti atkvæða félli gegn henni. Kröfurnar sem lögin setja þýða í raun, með hliðsjón af framangreindu, að ríkissáttasemjari er að ákveða efni kjarasamnings í stað samningsaðila.

Miðlunartillaga er neyðarúrræði ríkissáttasemjara sem verður að beita af mikilli varfærni og á viðeigandi tímapunkti. Að leggja til miðlunartillögu áður en niðurstaða kosningar um verkfallsaðgerðir liggur fyrir leiðir óhjákvæmilega til þess að verkfallsvopnið er slegið úr höndum stéttarfélaga sem hafa fullan rétt á að beita því. Að gera að engu verkfallsvopn stéttarfélags er alvarleg aðgerð og stórt ríkisinngrip. Þegar miðlunartillögu er beitt hefur það ekki aðeins áhrif á það stéttarfélag sem um ræðir heldur öll önnur stéttarfélög í landinu og getur skapað hættulegt fordæmi. Miðað við aðstæður og þær upplýsingar sem liggja fyrir nú gerum við alvarlegar athugasemdir við þá ákvörðun ríkissáttasemjara að leggja fram miðlunartillögu á þessum tímapunkti.

BHM, BSRB og KÍ gera þá sjálfsögðu kröfu að sjálfstæður samningsréttur stéttarfélaga sé virtur. Aldrei má ganga út frá því að kjarasamningur eins stéttarfélags bindi hendur annarra stéttarfélaga eða vegi að sjálfstæði þeirra. Hlutleysi og lagalegar forsendur þurfa að vera hafnar yfir allan vafa þegar ríkissáttasemjari ákveður að hlutast til um með beinum hætti í vinnudeilur.


Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)