Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

23. febrúar 2023

Aðalfundur Háskóladeildar haldinn 17. mars

Hlutverk Háskóladeildar Sameykis er m.a. samkvæmt lögum Sameykis að fjalla um hagsmuna- og sérmál er varða réttindi og kjör félagsfólks með háskólamenntun.

Stjórn Háskóladeildar Sameykis boðar til aðalfundar 17. mars næstkomandi. Fundurinn verður haldinn milli kl. 16 og 18 í BSRB félagamiðstöðinni við Grettisgötu 89.

Boðið verður upp á léttar veitingar í lok fundar.

Dagskrá fundarins:
Kosning í stjórn Háskóladeildar
Kosning formanns

Formaður er kjörinn sérstaklega auk fimm manna í stjórn og tveggja varamanna.

Óskað er eftir framboðum til formanns og í stjórn. Framboð berist til Jakobínu Þórðardóttur með tölvupósti á netfangið jakobina[hjá]sameyki.is

Háskóladeild Sameykis var stofnuð 4. apríl 2019. Hlutverk deildarinnar er m.a. samkvæmt lögum Sameykis að fjalla um hagsmuna- og sérmál er varða réttindi og kjör félagsfólks með háskólamenntun. Um er að ræða félagsfólk sem lokið hefur Bachelor gráðu eða sambærilegu námi (180 ECTS). Félagsfólk sem lokið hafa fyrsta námsári eða 60 ECTS einingum á háskólastigi geta einnig sótt um aðild að deildinni sem nemar.

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)