Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

2. mars 2023

BSRB hafnar úreltum aðferðum ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, segir að ríkisstjórnin verði að grípa til aðgerða í efnhagsmálum þjóðarinnar strax. Segir hún að beita þurfi sértækum tekjuöflunaraðgerðum gegn verðbólgu, auknu aðhaldi á markaði og stuðningsaðgerðum við heimili í vanda.
 
Hún gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir að láta Seðlabankann einan algerlega um hagstjórnina.
 
„Í stað þess að bregðast við hafa ráð­herrar eftir­látið Seðla­bankanum al­ger­lega hag­stjórnina – sem hefur einungis tak­mörkuð og al­menn tæki til. Þetta hefur haft al­var­legar af­leiðingar í för með sér fyrir al­menning.“
 
Sonja segir að fyrirtækin ráði ein verðlagi og stjórnvöld þurfi að tryggja virka samkeppni og neytendavernd á þeim fákeppnismarkaði sem er hér á landi. Vegna vaxtahækkana hækka  fyrirtækin vöruverð á nauðsynjavörum og taka ekki þátt í að draga úr verðbólgunni.
 
„Það eru fyrir­tækin sem á­kveða verð­lag. Hér ríkir fá­keppni á mörkuðum með nauð­synja­vörur og mun sú staða ekki breytast af sjálfu sér. Stjórn­völd geta og eiga að tryggja virka sam­keppni og neyt­enda­vernd. Hjá stór­fyrir­tækjunum er svig­rúm til þess að minnka á­lagningu, sem eykst þó með degi hverjum og veldur aukinni verð­bólgu.“
 
Þá segir hún að ríkisstjórnin þurfi að bæta stöðu ríkissjóðs með tekjuöflun hjá þeim sem hafa svigrúm til þess: hátekjuskatt, bankaskatt, stóreignaskatt, fjármagnstekjuskatt og hærri hlutdeild í tekjum af afnotum auðlinda í eigu þjóðarinnar. Og enn fremur segir hún í grein sinni að ríkisstjórnin og Seðlabanki eiga að bera ábyrgð á hagstjórn landsins, en í stað þess virðist sem þeir aðilar beina sjónum sínum að launafólk sem virðist eitt eiga að bera stöðugleikann á herðum sér.
 
„BSRB hefur bent á að ríkis­stjórnin þurfi að bæta stöðu ríkis­fjár­mála með tekju­öflun hjá þeim sem sannar­lega hafa svig­rúm til að leggja meira af mörkum til sam­neyslunnar. Þar má nefna há­tekju­skatt, stór­eigna­skatt, banka­skatt, hækkun fjár­magns­tekju­skatts og hærri hlut­deild al­mennings í tekjum fyrir af­not á sam­eigin­legum auð­lindum. Verð­bólga er nú í tveggja stafa tölu og því þarf að grípa til ráð­stafana strax en ekki bíða næsta fjár­laga­árs. [...] Ríkis­stjórn og Seðla­banki bera á­byrgð á hag­stjórn landsins. Þessir aðilar beina þó oftast sjónum sínum að launa­fólki sem virðist eitt eiga að bera stöðug­leikann á herðum sér.“
 
Lesa má grein formanns BSRB hér.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)