Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

24. maí 2023

ETUC þing: „Fólk vill ekki einkavæða opinbera þjónustu“

Jan Willem Goudriaan, framkvæmdastjóri EPSU (Evrópusamband stéttarfélaga í almannaþjónustu).

Jan Willem Goudriaan, framkvæmdastjóri EPSU (Heildarsamtök stéttarfélaga opinberra starfsmanna í Evrópu) flutti ræðu á þingi ETUC (Heildarsamtök verkalýðsfélaga í Evrópu) í dag. Hann minnti þingið á að EPSU fagnar 45 ára afmæli samtakanna á þessu ári sem samanstendur af 45 ára baráttu fyrir réttindum og störfum opinbers starfsfólks í Evrópu. Hann sagði að EPSU vænti þess að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins leggi til nýjan ramma fyrir samninga aðila vinnumarkaðarins og að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins verði að halda áfram að styðja viðræður um opinbera vinnumarkaðinn.

„Við væntum þess líka að samningur sem gerður hefur verið um stafræna væðingu fyrir miðstjórn Evrópusambandsins sem samþykktur er af EPSU og öðrum aðilum vinnumarkaðarins verður að umbreytast í tilskipun. Samningurinn þarf að koma til framkvæmda með lögum. Framtíðarráðstefnan við öfluga opinbera þjónustu fyrir Evrópu nýtur mikils stuðning meðal borgaranna - fólk vill ekki einkavæða opinbera þjónustu og því mun baráttan gegn nýjum aðhaldsaðgerðum hægri stjórnmála skipta sköpum á næstu árum fyrir Evrópuríkin,“ sagði Jan.

Jan Willem sagði á þinginu, sem haldið er í Berlín 23.-26. maí, að fólk vilji ekki skera niður opinbera þjónustu, vilji ekki einkavæða hana. Hann sagði að barist yrði gegn þessum áformum á vettvangi landanna og einnig að barist verði fyrir því einni röddu ETUC á vettvangi Evrópuráðsins; að lög verði sett til að verja grunnþjónustuna og störfin.

„Það mun skipta sköpum fyrir okkur að okkar tillögur til varnar opinberri þjónustu verði að lögum. Vakning launafólks í almannaþjónustu í Evrópu hefur átt sér stað. Við viljum meiri vakningu á fleiri stöðum. Í því felst styrkur okkar, að við sameinumst um alla Evrópu í kröfum okkar um stéttarfélagsréttindi, verkfallsréttindi opinbers starfsfólks og fjármögnun opinberrar þjónustu og innviðanna. Íbúar Evrópu vilja ekki að opinber þjónusta verði einkavædd, né að hún verði markaðsvædd. Slagurinn gegn markaðshyggjuöflum sem vilja skera niður og einkavæða opinbera þjónustu mun halda áfram á næstu árum. Að lokum vil ég óska eftir ykkar stuðningi vegna þess að í gær hófu opinberir starfsmenn í Finnlandi verkfall til að krefjast betri launa, betri aðbúnaðar og fleira starfsfólk. Það sama gerðist í morgun þegar opinberir starfsmenn í Rúmeníu hófu verkfall á sömu forsendum. Þetta er að gerast um alla Evrópu þessi misserin,“ sagði Jan Willem Goudriaan og hrópaði hvatningarorð í salnum til stuðningi verkfallsaðgerðum í Evrópu að lokum.


Frá þingi ETUC í Berlín í dag.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)