14. júní 2024
Kosning um kjarasamning Fríhafnarinnar hafin
Skjáskot af Mínum síðum Sameykis.
Í morgun kl. 10:00 hófst kosning um nýundirritaðan kjarasamning Sameykis við SA f.h. Fríhafnarinnar ehf. Kosningin mun standa yfir til kl. 14:00 miðvikudaginn 19. júní 2024.
Kynningarfundur var haldinn í morgun kl. 10:00 með félagsfólki Sameykis sem starfa hjá Fríhöfninni ehf. Glærur og undirritaður kjarasamningur er kominn inn á Mínar síður Sameykis.
Þar getur félagsfólk kynnt sér innihald kjarasamningsins ásamt kynningargögnum.
Við viljum árétta að mikilvægt er að félagsfólk skrái réttar upplýsingar inn á Mínum síðum Sameykis, m.a. netföng og símanúmer.
Hvetjum allt félagsfólk til að taka þátt í kosningunni um kjarasamninginn.