21. janúar 2025
Opnað fyrir bókanir á Spáni á föstudaginn kemur

Sameyki opnar fyrir umsóknir um úthlutun á tímabilinu maí til ágúst á Spáni á föstudaginn n.k. kl. 9:00. Um er að ræða tvær orlofsíbúðir til útleigu fyrir félagsfólk í nágrenni Alicante, í Quesada og fjölbýlishúsi við ströndina Los Arenales del Sol. Á Tenerife er um að ræða raðhús við Los Cristianos. Húsið og íbúðirnar eru vel útbúin og í þeim er m.a. þvottavél og loftkæling en sérsundlaug fylgir húsinu á Tenerife. Sjá nánar á Orlofshúsavef Sameykis.
Spánn íbúð nr. 129 í Quesada
Spánn Íbúð nr. 48 við ströndina Los Arelanes
Villa í Los Cristianos, Tenerife
Tímabilið er 13 vikur – 22. maí til 21. ágúst. Lokað verður fyrir bókanir 16. febrúar.