23. apríl 2025
Gleðilegt sumar

Stjórn og starfsfólk Sameykis óska félagsfólki um land allt og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars.
Vikivaki lag Valgeirs Guðjónssonar með texta Jóhannesar úr Kötlum fær marga til þess að finna fyrir gleðinni yfir sumarkomu.
Vikivaki
Sunnan yfir sæinn breiða
sumarylinn vindar leiða.
Draumalandið himinheiða
hlær - og opnar skautið sitt.
Vorið kemur, heimur hlýnar,
hjartað mitt!
Gakk þú út í græna lundinn,
gáðu fram á bláu sundin.
Mundu, að það er stutt hver stundin,
stopult jarðneskt yndi þitt.
Vorið kemur, heimur hlýnar,
hjartað mitt!
Allt hið liðna er ljúft að geyma
- láta sig í vöku dreyma.
Sólskinsdögum síst má gleyma,
segðu engum manni hitt!
Vorið kemur, heimur hlýnar,
hjartað mitt.