Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

30. apríl 2025

Ný stjórn í Lífeyrisdeild Sameykis

Kári Sigurðsson formaður Sameykis með nýrri stjórn Lífeyrisdeildar til næstu tveggja ára. Hildur Gunnarsóttir, Þórdís Richter, Marías Sveinsson, Hafdís H. Vilhjálmsdóttir, Sveinn Pálsson og nýr formaður lífeyrisdeildar Emilía Guðrún Jónsdóttir. Á myndina vantar Pétur Ásbjörnsson.

Aðalfundur Lífeyrisdeildar var haldinn í gær. Það var góð mæting á fundinn þar sem Jón Björnsson var með erindi áður en lögbundin aðalfundarstörf hófust.
Ingibjörg Óskarsdóttir formaður flutti skýrslu stjórnar, Þórdís Richter fór yfir reikninga deildarinnar og um starfssemi og reikninga Símenntunarsjóðsins.
Í kjölfarið fór fram kosning formanns og sex meðstjórnenda.

Emilía Guðrún Jónsdóttir var kjörinn formaður en þau Sveinn Pálsson voru í framboði og hafði Emilía betur.

Síðan fór fram kosning sex meðstjórnenda, í framboði voru; Hildur Gunnarsdóttir, Marías Sveinsson og Þórdís Richter sem öll hafa verið í stjórn frá 2023 en einnig buðu sig fram Pétur Ásbjörnsson, Sveinn Pálsson og Hafdís Vilhjálmsdóttir þessir sex voru því sjálfkjörnir.

Ingibjörg Óskarsdóttir, Bryndís Þorsteinsdóttir, Guðjón Magnússon og Guðrún Árnadóttir láta nú af störfum í stjórn eftir þrjú tímabil var þakkað fyrir frábær störf fyrir Lífeyrisdeildina.