30. apríl 2025
Til hamingju með baráttudag launafólks 1. maí

Alþjóðlegur baráttudagur launafólks á Íslandi er haldinn á morgun 1. maí. Við hvetjum félagsfólk og fjölskyldur þeirra til þess að fjölmenna í göngur.
Að þessu sinni er slagorðið "Við sköpum verðmætin" Auk þess mun kvennaár á Íslandi setja svip sinn á hátíðarhöldin víða um land.
Dagskrá hátíðarhaldanna í Reykjavík
Ávarp fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík
Grein frá formönnum BSRB,BHM og KÍ og forseta ASÍ
Upplýsingar um dagskrána þann 1. maí fyrir landið allt er aðgengileg á heimasíðunni: https://1mai.is/
Bendum á að árlegt 1.maí-kaffi BSRB verður á Grettisgötu 89 að loknum útifundi á Ingólfstorgi.