Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

8. maí 2025

Sonja með erindi á fundi Háskóladeildar

Fámennur en góðmennur fundur var haldinn í Háskóladeild Sameykis í gær. Sonja Ýr Þorbrergsdóttir formaður BSRB flutti erindi um endurmat á virði kvennastarfa, sem var mjög áhugavert og sköpuðust góðar umræður um efnið. 
Að því loknu fór Gunnhildur Hekla Jóhannsdóttir formaður Háskóladeildar yfir starf deildarinnar frá síðasta aðalfundi. 
Farið var yfir breytingar á starfsreglum og sitjandi stjórn var endurkjörin. 
Fundargestir sátu svo og spjölluðu og áttu hugglega stund saman.