Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

12. maí 2025

Skráning á fjölskyldudag í Heiðmörk

Sameyki stendur fyrir fjölskyldu og gróðursetningarferð í „Landnemareit“ Sameykis í Heiðmörk sunnudaginn 18. maí milli kl. 12 og 15, þar sem félagsfólki býðst að taka þátt í frekari gróðursetningu í reitnum.

Boðið verður upp á veitingar fyrir alla fjölskylduna í fallegu umhverfi.  Góð veðurspá er fyrir sunnudaginn, 18 gráður og sól.

Gott er að leggja bíl á svokölluðu Borgarstjóraplani, en þaðan er rúmlega 600 metra löng ganga í lundinn. Leiðin verður vel merkt með flöggum Sameykis.

Skráning er á viðburðinn til að hægt sé að áætla veitingar.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Heiðmörk skráning