21. maí 2025
Góður dagur í Heiðmörk
Í annað sinn eftir langt hlé var farið í fjölskylduferð í Heiðmörk síðastliðinn sunnudag. Veðrið lék við okkur eins og aðra landsmenn. Gróðursettar voru bæði birkiplöntur og berjarunnar.
Spennandi verður að sjá næstu árin hvernig tréin dafna og hvort hægt verði að fara í lundinn okkar og tína ber í framtíðinni.
Vonandi verður þetta árlegur viðburður hjá Sameyki og félagsfólki þess.