22. maí 2025
Hvatning til þátttöku - Vertu með!

Nú stendur yfir könnunin Sveitarfélag ársins. Könnunin er hluti af samstarfsverkefni bæjarstarfsmannafélaga og stéttarfélaga innan BSRB og nær til félagsmanna sem starfa hjá sveitarfélögum fyrir utan Reykjavíkurborg.
Við hvetjum alla sem fengu könnunina senda að taka þátt og leggja þannig hönd á plóg í baráttunni fyrir betra starfsumhverfi. Þeir sem taka þátt lenda sjálfkrafa í happdrætti þar sem sjö heppnir svarendur hljóta vinning að verðmæti 15.000 kr. Það tekur einingis 10-12 mínútur að svara.