20. febrúar 2026
ASÍ hafnar áróðri Viðskiptaráðs gegn veikindarétti launafólks

Magnús Norðdahl, lögfræðing Alþýðusambands Íslands. Samsett mynd/Sameyki
Alþýðusamband Íslands (ASÍ) hafnar harðlega málflutningi Viðskiptaráðs um veikindarétt launafólks og segir umræður ráðsins byggðar á rangfærslum og einhliða framsetningu. Í nýlegri grein eftir Magnús Norðdahl, lögfræðing Alþýðusambands Íslands, er bent á að veikindaréttur sé grundvallarréttur launafólks sem hafi verið samningsbundinn í kjarasamningum í áratugi – veikindaarétturinn sé ekki „ívilnun“ heldur áunnin réttindi sem er hluti af heildarkjörum.
Í greininni er gagnrýnt að Viðskiptaráð stilli veikindarétti upp sem kostnaðarvanda fyrir atvinnurekendur án þess að taka mið af samhengi, svo sem eðli vinnunnar og starfa, vinnuumhverfi eða skipulagi á vinnustöðum. ASÍ bendir á að rétturinn sé hluti af því öryggisneti sem tryggi að fólk geti verið heima þegar það veikist án þess að missa lífsviðurværi sitt.
ASÍ undirstrikar að veikindaréttur sé mikilvægur bæði fyrir einstaklinga og samfélagið í heild. Hann stuðli að lýðheilsu, dragi úr útbreiðslu smita og tryggi stöðugleika á vinnumarkaði. Að mati sambandsins er varhugavert að grafa undan slíkum réttindum á grundvelli þröngrar kostnaðarsýnar.
Sameyki tekur undir mikilvægi þess að verja áunnin réttindi starfsfólks á opinberum vinnumarkaði. Veikindaréttur er hornsteinn kjarasamninga og tryggir öryggi og jafnræði þegar á reynir. Umræða um réttindi launafólks þarf að byggjast á staðreyndum og heildarsýn – ekki einföldun sem grefur undan trausti og samstöðu á vinnumarkaði.
Lesa má grein Magnúsar Norðdahl hjá ASÍ hér.