Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Heildarniðurstöður -13.300 svör

Hér á eftir verður gerð nánari grein fyrir heildarniðurstöðum könnunarinnar sem er byggð á svörum rúmlega 13.300 manns. Hér er unnið með öll svör, hvort sem stofnun komst á lista eða ekki og hvort sem svörin komu frá ríkisstofnunum, Reykjavíkurborg, sveitarfélögum, sjálfseignarstofnunum  eða fyrirtækjum borgarinnar. Niðurstöður hér á eftir víkja því sumstaðar frá þeim niðurstöðum sem sagt hefur verið frá hér á undan.

Heildareinkunn

Heildareinkunnin er vegið meðaltal úr þáttunum níu og það er hún sem notuð er við val á stofnun ársins (sjá mynd 7). Stjórnun vegur þyngst í heildarmatinu, en næst þyngst vega starfsandi og jafnréttisþátturinn.

Heildareinkunn og einkunnir þátta taka gildi á bilinu 1 til 5, þar sem 1 gefur til kynna mesta óánægju en 5 gefur til kynna mesta ánægju eða jákvæðustu afstöðuna. Einkunnir eru flokkaðar í fimm flokka: Mjög góð einkunn er á bilinu 4,5-5; frekar góð, einkunn á bilinu 3,5-4,4; hvorki góð né slæm einkunn er einkunn á bilinu 2,5-3,4; frekar slæm einkunn á bilinu 1,5-2,4; og mjög slæm einkunn er einkunn á bilinu 1-1,4.

Meðaleinkunnin sem starfsfólk gefur vinnustaðnum er 3,91 (mæld á kvarðanum 1-5). Nærri átta af hverjum tíu svarendum gefa vinnustað sínum „góða“ heildareinkunn (einkunn á bilinu 3,5 til 5,0) og af þeim gefa rúm 18% „mjög góða“ einkunn, það er einkunn á bilinu 4,5 til 5,0. Í síðustu mælingu var einkunnin 3,93 en 3,92 árið 2019. Litlar breytingar eru því á heildareinkunnum milli ára. Starfsfólk fyrirtækja borgarinnar og sveitarfélaganna sem eru í könnuninni gefa heldur hærri einkunnir en starfsfólk ríkisstofnana og sjálfseignarstofnana (sjá mynd 7).


Mynd 7: Heildareinkunnir 2019, 2020 og 2021 – allar stofnanir og  eftir tegund stofnana

Þá gefa yngsti (yngri en 30 ára) og elsti aldurshópurinn (60 ára eða eldri) lítið eitt hærri einkunnir en aldurshóparnir sem eru þarna á milli (30-39 ára, 40-49 ára og 50-59 ára). Stjórnendur gefa einnig hærri einkunn en annað starfsfólk og starfsfólk minni stofnana gefur almennt hærri einkunn en starfsfólk stærri stofnana.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)