Unnið er að uppfærslu á úthlutunarreglum
Úthlutunarreglur gilda frá og með 9. nóvember 2023
1. Markmið
Auka möguleika sviða, starfseininga, stofnana og vinnustaða til að þróa hæfni og þekkingu starfsmanna þannig að þeir geti á betri hátt uppfyllt þær kröfur sem starfsemin kallar á hverju sinni.
2. Hverjir geta sótt um
Samningsaðilar sem greiða iðgjald fyrir sjóðsfélaga sem eru Reykjavíkurborg, Félagsbústaðir, Faxaflóahafnir og Strætó.
3. Hvað er styrkt
Verkefni sem tengjast því að þróa hæfni þeirra félagsmanna sem samningsaðilar greiða iðgjald fyrir í sjóðinn.
Fræðslusjóður styrkir eftirfarandi:
a. Gerð starfsþróunaráætlana
b. Verkefni sem byggja á starfsþróunaráætlun
c. Námskeið
d. Annað
Lögð er áhersla á að umsóknir berist áður en verkefni hefst og hvatt er til samráðs við sjóðsstjórn áður en lagt er í viðameiri verkefni. Umsókn um styrk verður að berast skrifstofu sjóðsins innan sex mánaða frá lokum náms/verkefnis.
Fræðsluferðir starfseininga:
Starfseiningar (deildir/svið) geta sótt um styrki vegna skipulagðra fræðsluferða sem tengjast fagsviði eða starfi þeirra. Á þetta við um fræðsluferðir innanlands, fagleg dagskrá skal vera að lágmarki 6 klukkustundir, sem og fræðsluferðir erlendis en í þeim skal lengd faglegrar dagskrár vera að lágmarki 8 klukkustundir og dreifast á a.m.k. tvo daga. Rökstyðja þarf staðarval náms.
Almenna viðmiðið er að starfseining getur fengið hópstyrk vegna fræðsluferðar/ráðstefnuferðar vegna tiltekins hóps á þriggja ára fresti.
Umsókn um fræðsluferð hópa verður almennt að berast að lágmarki 3 mánuðum fyrir upphaf fræðslunnar. Hafa skal í huga leiðbeinandi reglur Reykjavíkurborgar og annarra vinnustaða um ferðaheimildir og fræðsluferðir. Mælt er með eftirfarandi skrefum sem eiga við Reykjavíkurborg en geta verið leiðbeinandi fyrir aðra aðila:
- Byrja að kanna allan kostnað vegna ferðarinnar.
- Senda inn umsókn til stéttarfélags.
- Bíða staðfestingar/niðurstöðu umsóknar frá stéttarfélagi.
- Sækja um ferðaheimild og skila henni til bókhaldsskrifstofu ásamt staðfestingu frá stéttarfélagi.
- Þegar heimild og staðfesting liggur fyrir er hægt að stofna til kostnaðar.
Gögn sem þurfa að fylgja þegar sótt er um vegna fræðsluferða:
- Bréf frá stjórnanda
Þar þarf að koma fram:
a. Hvert er markmið og tilgangur ferðar.
b. Hvernig nýtist ferðin til frekari þróunar starfseiningarinnar.
c. Rökstuðningur á staðarvali, af hverju verður þessi staður fyrir valinu.
d. Hversu margir taka þátt í fræðsluferðinni og hversu margir af þeim eru í Sameyki.
e. Nöfn og kennitölur félagsfólks Sameykis.
f. Hvort og þá hvenær þessi starfseining hafi áður farið í fræðsluferð.
- Staðfesting sviðsstjóra / umboð
Þegar sótt er um fyrir starfseiningu/hópa þarf að koma staðfesting frá sviðsstjóra/sviðsstjórum um að viðkomandi hópi sé heimilt að sækja fræðsluferð/ráðstefnu erlendis og að ferðin styðji við stefnu sviðsins. Ef annar en sviðsstjóri sendir inn umsókn fyrir hönd sviðsins/starfseiningar þá þarf að skila inn undirrituðu umboði frá viðkomandi sviðsstjóra.
- Bréf frá móttökuaðila
Staðfesting á móttöku hópsins/starfseiningarinnar með upplýsingum um tíma og innihald fræðslu.
- Ítarleg dagskrá
Þar þarf að koma fram:
a. Hvaða staðir eru heimsóttir, heiti staðarins og nafn tengiliðs.
b. Dagsetningar heimsókna og tímaáætlun í klukkustundum.
c. Innihaldslýsing faglegrar fræðslu fyrir hvern dagskrárlið.
Athugið! Eftirfarandi fellur ekki undir faglega fræðsludagskrá:
Almennar heimsóknir / móttökur í sendiráð eru ekki hluti af faglegri dagskrá.
Gönguferðir með leiðsögn um borgir falla öllu jafna ekki undir faglega dagskrá.
- Kostnaðaráætlun
Stjórn Fræðslusjóðs Sameykis beinir því til starfseininga og vinnustaða að gæta hófs og skipuleggja fræðsluferðir með eins hagkvæmum hætti og hægt er. Skila þarf inn kostnaðaráætlun þar sem fram kemur kostnaður fyrir hvern þátttakanda og heildarkostnaður vegna þátttöku félagsfólks Sameykis.
Veittur er styrkur vegna kostnaðar sem tengist:
a. fræðslu, ráðstefnu, vinnustofu,
b. flugi,
c. gistingu,
i. eingöngu þær gistinætur sem tengjast faglegri dagskrá og ferðadögum,
ii. hámark er á greiðslu fyrir hverja nótt, horft er til ákvörðunar ferðakostnaðarnefndar ríkisins sem byggir á SDR gengi og skiptist í fjóra flokka, sjá nánar hér.
d. lestir/rútur milli borga/landshluta vegna staðarvals fræðslu
Athugið! Hvað er ekki styrkt í tengslum fræðsluferðir?
Ferðir til og frá millilandaflugvöllum innanlands og erlendis, fæðiskostnaður/dagpeningar, ferðir innan borga og sveitarfélaga, leigubílar, bensín, launatap, bílaleigubílar.
4. Upphæð styrkja
Upphæðir styrkja eru háðar stöðu sjóðsins hverju sinni og mati stjórnar á þeim verkefnum sem sótt er um styrki fyrir.
5. Hvernig er sótt um
Sótt er um rafrænt hér
Með hverri umsókn þarf að fylgja eftir því sem við á:
- sundurgreining kostnaðar,
- fjölda þátttakenda í verkefni/námskeiði og hversu margir þeirra eru í Sameyki,
- tilboð í verkefni,
- lýsing á innihaldi, markmiði og tilgangi fræðslunnar.
Umsókn um styrk verður að berast skrifstofu sjóðsins innan 6 mánaða frá lokum náms/verkefnis.
6. Hvernig eru umsóknir afgreiddar
Úthlutun úr sjóðnum fer fram a.m.k. ársfjórðungslega eða oftar samkvæmt ákvörðun sjóðsstjórnar. Skila þarf inn reikningum fyrir kostnaði tengdum verkefninu. Ekki er þó unnt að skila inn reikningi sem er eldri en 12 mánaða.
Úthlutunarreglur samþykktar á fundi stjórnar Fræðslusjóðs Sameykis 8. nóvember 2023.