Námsstofa um styttingu vinnuvikunnar
Námsstofurnar eru fyrir trúnaðarmenn Sameykis sem eru sérstaklega boðaðir.
Í námsstofunni munu forsvarsmenn Sameykis fara yfir hugmyndafræðina á bak við styttingu vinnuvikunnar. Í kjölfarið munu starfsmenn kjarasviðs Sameykis fara yfir ferilinn sem gert er ráð fyrir að fylgja á hverjum vinnustað fyrir sig þannig að samkomulagi um styttinguna náist fyrir 1. janúar 2021.
Gert er ráð fyrir virkum umræðum og spurningum frá þátttakendum meðan á námsstefnunni stendur. Reikna má með að námsstofan taki um 1,5 klst.