Ukulele
Áhugavert námskeið þar sem nemendur koma með sitt eigið ukulele. Svavar Knútur kynnir þetta bráðskemmtilega hljóðfæri og fer yfir grundvallaratriði í leik og söng með samspili og leiðsögn. Á þessum árstíma er kjörið að nota jólalögin til að læra á ukuleleið og þá er um að gera að læra nokkur góð jólalög saman. Ef þátttakendur eiga ekki Ukulele getur Svavar útvegað fyrirtaks hágæða ukulele til að byrja á, á kostnaðarverði (áhugasamir hafi samband í helga@framvegis.is). Þátttakendum er boðið að taka með sér barn eða barnabarn og læra saman á ukulele.
Kennt verður 15. og 29. nóvember og 6. desember
Fyrsti tíminn kl.18:00-20:00, annars 19:00-21:00, samtals 6 klst.