Fellur niður - Trúnaðarmannanám - Tími með sérfræðingum á kjaradeild Sameykis
Athugið! Þetta námskeið fellur niður.
Hefur þú áhuga á kjara- og réttindamálum og langar í svör við álitaefnum? Skráðu þig þá á þetta námskeið því hér er hugmyndin að trúnaðarmenn sendi inn fyrir fram spurningar og umræðuefni sem tengjast raunverulegum álitaefnum sem upp koma á vinnustöðum. Á námskeiðinu verður síðan unnið með þær fyrirspurnir sem berast frá trúnaðarmönnum og unnið að lausnum.
Sömuleiðis er hér tækifæri fyrir trúnaðarmenn að koma á framfæri við sérfræðinga Sameykis helstu atriðum sem þeir telja að skipti máli í kjara- og réttindabaráttu félagsmanna.