Kyrrðargöngunámskeið / hæglætisgöngunámskeið
Hvar finnst þér gott að ganga? Oft göngum við okkar vanabundna hring í okkar vanabundna göngutakti eða strunsum til að koma blóðinu á hreyfingu og komast yfir sem mesta vegalengd á sem stystum tíma. Sem er frábært! En hvað gerist ef við hægjum á? Á þessu námskeiði verður farið í leiddar kyrrðargöngur eða hæglætisgöngur í þremur ólíkum náttúruperlum þar sem gengið verður með vatni, skógi og hafi. Gengið verður að hluta til í þögn.
Fyrir hverja göngu verður fræðsla um áhrif náttúru á jákvæða heilsu; vellíðan, endurheimt og streitulosun.
Hver tími hefst á fræðslu og svo er ekið í 5-10 mínútur að gönguleiðum.
Um er að ræða 6 klst. námskeið kennt 12., 19. og 26. október kl. 17:00-19:00