Málþing um kulnun
Kl: 16:15-18:15
Staðsetning: Grettisgata 89, 1. hæð.
Heilbrigðis- og velferðarnefnd Sameykis boðar til opins málþings um kulnun eða starfsþrot á vinnustað. Málþingið verður haldið þriðjudaginn 1. nóvember, kl. 16:15 til 18:15, á Grettisgötu 89, 1. hæð.
Umfjöllunarefnið er einkenni sem benda til þess að einstaklingur sé að fara í starfsþrot/eigi við kulnun í starfi að etja. Fjallað verður um leiðir til þess að koma í veg fyrir kulun í starfi og starfsþrot, hvort sem er á vinnustað eða í einkalífi.
Fyrirlesarar
- Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga nagli, sálfræðingur og þjálfari
- Geir Gunnar Markússon, næringarfræðingur NLFÍ
- Líney Árnadóttir, sérfræðingur á forvarnarsviði hjá Virk starfsendurhæfingu