Aðalfundur Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu
Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 17. september að Gullhömrum, Þjóðhildarstíg 2-6, en fundinum sem vera átti í mars var frestað vegna Covid-19 faraldursins.
Vegna aðstæðna þarf að skrá sig á fundinn á vefsíðu félagsins fyrir 15. september. Hægt verður að velja um að koma á staðinn eða taka þátt í fundinum gegnum streymi. Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu.
Skráningu á aðalfundinn er lokið, henni lauk á miðnætti 15. september.
Dagskrá:
1. Stjórn félagsins gefur skýrslu um starfsemi félagsins á síðastliðnu ári.
2. Lagðir fram til samþykktar endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið almanaksár.
3. Tekin ákvörðun um tillögur til lagabreytinga og breytinga á reglum sjóða.
4. Kosinn löggiltur endurskoðandi félagsreikninga, tveir skoðunarmenn og tveir til vara.
5. Ákveðið árgjald félagsmanna og skipting þess milli sjóða.
6. Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram til samþykktar.
7. Ályktanir aðalfundar afgreiddar.
8. Önnur mál.