Sjósund - fellur niður

Af óviðráðanlegum orsökum fellur sjósundsnámskeiðið niður, stefnt er á að bjóða upp á sjósund þegar líður á vorönnina.
Námskeiðið verður byggt á “villisundi”. Það þýðir að við förum í sjóinn á stöðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu þar sem engin eiginleg búningsaðstaða er til staðar eða heitir pottar. En þessi aðferð er hollari fyrir líkamann en að fara beint í hita og er mest notuð af sjósundsfólki í heiminum. Við fáum okkur heitt að drekka og hitum okkur upp saman eftir tímann með röskum göngutúr.
Á fyrirlestrinum verður farið yfir hvað þarf að vita áður en farið er í sjóinn, öryggisreglur, búnað og fleira og er þáttaka á fyrirlestrinum forsenda þess að halda áfram á námskeiðinu. Að fyrirlestri loknum hafa þátttakendur val um að koma í annan eða báða tímana í sjó.
Nokkrar staðreyndir:
Hitastig sjávar er ca.0-4°C. í janúar, en fer að hlýna í mars/apríl og getur farið í 15° á sumrin
Þátttakendur verða að geta synt 200 metra í sundlaug.
Mælt er með skóm/sokkum, hönskum og skærlitaðri sundhettu auk þess sem mun skemmtilegra er að hafa góð sundgleraugu og sjá lífið í sjónum.
Dagsetningar:
Fyrirlestur og kynning: Miðvikudagur 5. október
Sjósund: Þriðjudagur 11. og fimmtudagur 13. október.
Kl: 18:00-19:00
Lengd: 1-3 klst.
Staður: Fyrirlestur og kynning hjá Framvegis Borgartúni 20, 3.hæð. Leiðbeinandi gefur upp staðsetningar á sjósundi.
Leiðbeinandi: Erna Héðinsdóttir sem kynntist sjósundi sumarið 2017 þegar hún var að leita leiða til að minnka verki tengda vefjagigt og krónískum höfuðverk og fann hún mikinn bata í sjónum. Í upphafi notaði hún sjóinn mest sem kælimeðferð en þegar hún synti yfir Fossvog í ágúst 2018 týndi hún hjartanu í sjónum, hefur verið forfallin sjósundskona síðan og stundar sjóinn að jafnaði 3-6 sinnum í viku. Sumarið 2019 synti hún til Viðeyjar og til baka og svo yfir Önundarfjörð sumarið 2021.
Erna er kennari, markþjálfi og lýðheilsufræðingur og með diploma í jákvæðri sálfræði. Hún er einnig mikil íþróttaáhugamanneskja og æfir Crossfit og Ólympískar lyftingar. Hún hefur mikla trú á því að sjórinn sé allra meina bót og langar að kenna og kynna dásemdir hans og heilunarmátt fyrir öðru fólki.
Henni til aðstoðar á námskeiðunum eru Birna Björnsdóttir og Sigrún Þ. Geirsdóttir.