Marokkó fyrir ferðamenn
Kl: 17:30-19:30
Staðsetning: Framvegis, Borgartún 20, 3ja hæð
Marokkó laðar til sín ferðamenn sem aldrei fyrr. Þegar farið er á framandi slóðir getur verið gagnlegt að kynna sér áfangastaðinn. Á þessu námskeiði fjallar Sonja Jósefsdóttir, sem er frá Marokkó og hefur búið í 23 ár á Íslandi, um ýmsa þætti sem gera undirbúning ferðarinnar auðveldari og ferðina sjálfa ánægjulegri. Sonja hefur skipt umfjöllun sinni í nokkra þætti:
- Landafræði og saga
- Veður og gjaldmiðill
- Menning og tungumál
- Helstu ferðamannastaðir, hvernig er best að ferðast um landið og áhugaverðir staðir til að skoða
- Matarmenning, vinsælasti maturinn og nokkrar uppskriftir
Um er að ræða 6 klst. námskeið kennt 10., 17. og 24. október kl: 17:30-19:30
Skráning hér