Að8sig - sjálfskoðun, tækifæri og áræðni!
Stendur þú á krossgötum og/eða ert að velta fyrir þér hvað er næst í lífinu? Er ástæða til að staldra við og skoða hvaða möguleika framtíðin ber í skauti sér? Námskeiðinu er ætlað að styðja þá sem finna hjá sér þörf eða löngun til að vega og meta styrkleika sína og langanir, með það fyrir augum að þátttakendur skoði markmið sín og íhugi næstu skref.
Námskeiðið er í 6 lotum:
- Velferð og hamingja
- Hvar er ég núna – Af hverju er ég hér?
- Styrkleikar og hæfni
- Draumar og ástríða
- Að taka breytingum fagnandi
- Áfram veginn
Segja má að námskeiðið sé ferðalag þar sem þátttakendur fara í sjálfskoðun og gera áætlun um næstu skref í lífinu, annað hvort stór eða smá. Tvær lotur eru í hvert sinn og því nauðsynlegt að þátttakendur mæti í alla tímana.
Um er að ræða 9 klst. námskeið sem verður kennt 13., 20. og 27. október kl. 17:00-20:00.
Skráning hér