- júní 2026
Sameyki hefur ráðið Guðmund Frey Sveinsson í starf sviðsstjóra kjara- og þjónustusviðs hjá félaginu. Um er að ræða nýtt stjórnandahlutverk innan Sameykis en á nýmótuðu Kjara- og þjónustusviði sameinast ábyrgð á kjaramálum, þjónusta við félagsfólk og fagleg ráðgjöf. Markmiðið með sviðinu er að styrkja þjónustu við félagsfólk, efla faglega yfirsýn og skýra ábyrgð og boðleiðir í málum sem varða kjör, réttindi og þjónustu.
Guðmundur Freyr þekkir vel til Sameykis og starfaði sem deildarstjóri kjaradeildar félagsins á árunum 2020–2023. Hann hefur einnig starfað sem sérfræðingur í kjaramálum og hefur víðtæka reynslu af starfi innan stéttarfélaga.
Guðmundur Freyr er með meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Auk reynslu sinnar af kjaramálum og stéttarfélagastarfi býr hann yfir stjórnunarreynslu úr skólastarfi og hefur gegnt ýmsum trúnaðar- og félagsstörfum.
Sameyki býður Guðmund Frey velkominn til starfa og hlakkar til samstarfsins.