- september 2026
Við hjá Sameyki tókum þátt í sameiginlegum félagsfundi Visku, FÍN, Dýralæknafélags Íslands og Stéttarfélags lögfræðinga með starfsfólki Matvælastofnunar, Fiskistofu, Verðlagsstofu skiptaverðs og heilbrigðiseftirlita sem haldinn var í gær.
Markmið fundarins var að hlusta á sjónarmið starfsfólks, greina helstu áhyggjur þess vegna fyrirhugaðra breytinga og tryggja að sjónarmið þess kæmu skýrt fram gagnvart stjórnvöldum í áframhaldandi vinnu við málið.
Við hvetjum félagsfólk okkar sem starfar hjá viðkomandi stofnunum til að fylgjast vel með framvindu málsins og vera í góðu sambandi við Sameyki.
Fundurinn sendi frá sér eftirfarandi áskorun til atvinnuvegaráðherra:
Félagsfundur starfsfólks Matvælastofnunar, Fiskistofu, Verðlagsstofu skiptaverðs og heilbrigðiseftirlita skorar á atvinnuvegaráðherra að leggja fram, án frekari tafa og eigi síðar en 1. október 2026, opinbera og skuldbindandi tímalínu um stofnun Stofnunar atvinnuveganna. Jafnframt verði starfsfólki veitt skrifleg og ótvíræð svör um framtíðarstörf, starfsstöðvar, kjör, forgangsrétt og varðveislu áunninna réttinda áður en þess er krafist að það taki ákvörðun um framtíð sína í starfi.
Fundurinn telur með öllu óásættanlegt að starfsfólk sé látið búa áfram við óvissu vegna tafa og skorts á upplýsingum.
Áskorun þessi var samþykkt á félagsfundi starfsfólks 22. september 2026, sem eftirfarandi stéttarfélög starfsfólks fyrrnefndra stofnana boðuðu:
Dýralæknafélag Íslands, FÍN, Sameyki, Stéttarfélag lögfræðinga, Viska