- október 2026
Næsti kafli
Næsti kafli
Nú liggur það fyrir að kjarasamningar á almennum vinnumarkaði halda. Ég tel að það hafi verið skynsamleg niðurstaða að þessu sinni að tryggja áframhaldandi vinnufrið og stöðugleika. Þar skipti aðkoma ríkisins með aðgerðapakka sínum miklu máli.
Umræðan undanfarna daga hefur hins vegar sýnt okkur að forsenduákvæði kjarasamninga eru ekki nægilega skýr og að túlkun þeirra getur verið ólík eftir því hver á í hlut. Þetta er mikilvægur lærdómur sem við þurfum að taka með okkur. Fyrir næstu kjarasamninga verðum við að skoða sérstaklega hvernig við tryggjum skýrari ákvæði þannig að ekki fari á milli mála hvað hefur verið samið um.
Nú eru um 16–18 mánuðir þar til flestir kjarasamningar Sameykis renna út. Sá tími mun líða hratt og fram undan er mikil vinna við undirbúning næstu samninga. Þar stöndum við vel að vígi. Kjaradeild Sameykis hefur aldrei verið öflugri og við búum yfir mikilli þekkingu og reynslu sem mun nýtast okkur vel í þeirri vinnu sem fram undan er. Við ætlum að nýta tímann vel, hlusta á okkar félagsfólk og mæta vel undirbúin til næstu kjaraviðræðna.
Á fundi trúnaðarmannaráðs nýverið tilkynnti ég að ég ætla að gefa kost á mér áfram til formanns Sameykis þegar kosið verður á næsta ári. Fram undan eru verkefni sem ég tel mikilvægt að fylgja eftir og mig langar að halda áfram að leggja mitt af mörkum fyrir félagið og ykkur.
Um leið vil ég hvetja ykkur til að taka þátt í komandi kosningum, bjóða ykkur fram til starfa í stjórn Sameykis og stjórnir sjóða félagsins og auðvitað nýta atkvæðisréttinn. Sameyki er félag félagsmanna sinna og framtíð þess ræðst af því fólki sem velur að taka þátt. Ég vona því að sem flestir taki þátt í að móta næsta kafla í sögu Sameykis.
Með kveðju,
Kári Sigurðsson
Formaður Sameykis