Image for Article

  1. apríl 2026

Haustopnun frestað til 6. maí

Fresta þarf opnun fyrir bókanir í orlofshúsum á hausttímabili og lengja umsóknarfrest um úthlutun á Tenerife. Þetta er gert til þess að tryggja þátttöku allra félagsmanna í opnuninni og gæta sanngirni. Haustopnunin átti að fara fram núna á morgun, 29. apríl en verður þess í stað viku seinna, miðvikudaginn 6. maí kl. 13:00. Frestur til þess að skila inn umsóknum um dvöl í húsinu á Tenerife verður framlengdur til 8. maí kl. 9:00.

Tenerife – haust og jól/áramót

Úthlutað verður eftir punktakerfi 11. maí.
Um er að ræða tímabilið 27. ágúst til 3. janúar 2027.
Leigutímabil er vika í senn, frá fimmtudegi til fimmtudags.
Verð á viku er 115.000 kr. og 40 punktar.

Hátíðartímabilið

Vegna þess að aðfangadagur og gamlársdagur lenda á fimmtudegi í ár verður sérstakt tímabil yfir hátíðirnar:
22. desember–3. janúar
Verð: 130.000 kr. og 40 punktar
Sótt er um á orlofshúsavef Sameykis.
Athugið: Félagar sem leigðu húsið á Tenerife árið 2025 og fyrr á árinu 2026 fá ekki úthlutað í þessari úthlutun.