Image for Article

  1. júlí 2026

Ólafsvík bætist í orlofshúsaflóruna okkar

Það er ánægjulegt að segja frá því að við erum að bæta í orlofskostina okkar. Nú bætist við ný orlofseign í fallegu umhverfi í Ólafsvík á Snæfellsnesi. Ólafsvík er heillandi bær sem býður upp á einstaka náttúru, fallegar gönguleiðir, höfn, sundlaug og nálægð við fjölbreytta afþreyingu á Snæfellsnesi.

Nýja húsið er við Sandholt 14. Húsið er 96 fm, byggt árið 1953 og skiptist í eldhús, stofu, tvö herbergi, hol og rúmgott baðherbergi. Bílastæði fylgir húsinu og úti er pallur með garðhúsgögnum og heitum potti.

Húsið er gæludýrahús, verður í heilsársleigu og verður leigt út í dagleigu.

Bókanir fara fram á orlofsvefnum.