- maí 2026
Nokkrir miðar eru enn lausir í ferð á Snæfellsnesið undir leiðsögn Harðar Gíslasonar fimmtudaginn 25. júní og þriðjudaginn 30. júní.
Lagt verður af stað kl. 9.30 frá Tækniskólanum við Háteigsveg (Gamla Sjómannaskólanum).
Keyrt verður í Borgarnes og út á Snæfellsnes þar sem áhugaverðir staðir verða skoðaðir. Á Narfeyrarstofu í Stykkishólmi verður boðið upp á rjómalagaða sveppasúpu og brauð í hádeginu. Við munum dvelja í Stykkishólmi og skoða fallegt umhverfi þar. Í lok dags verður boðið upp á kvöldverð á Hótel Hamri í Borgarfirði. Áætluð heimkoma er kl. 20.30
Félagsfólk má bjóða með sér einum gesti. Verð er 9.000 kr. á mann með öllu inniföldu. Hægt að kaupa miða í ferð á orlofsvef eða smella hér